Tjarnarlundur 9, 600 Akureyri
46.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
80 m2
46.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1973
Brunabótamat
38.400.000
Fasteignamat
39.000.000

Björt og skemmtileg 80,2m2 endaíbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli sem hefur talsvert verið endurnýjað, ásamt sérgeymslu í sameign.
Íbúðin er mjög björt með gluggum á þrjá vegu og svölum til vesturs.


Eignin skiptist:  Forstofa, tvö herbergi, þvottahús, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu í sameign.

Forstofa: Parket á gólfi, fatahengi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með tveimur gluggum, dökk eldri innrétting með ljósum borðplötum. Paket á gólfi.
Stofa: Björt með parketi á gólfi.  Hurð sem er nýleg er út á svalir til vesturs. 
Hol: Parket á gólfi, stór hvítur fataskápur er þar.
Baðherbergi: Er flísalagt gólf og veggir, upphengdir skápar og lítil innrétting við vask.  Baðkar með sturtutækjum. 
Þvottahús:  Með dúk á gólfi, borðplötu yfir þvottavél og hillur, stór gluggi.
Svefnherbergin: Eru tvö, hjónaherbergi er með eldri ljósum fataskáp og bæði með parketi á gólfi.
Geymsla:  Í sameign sem er skráð 4,3m2.

Annað:
- Eignin er nánast öll upprunaleg að innan.
- Búið er að endurnýja gler, svalahurð og opnanleg fög.
- Búið er að einangra þak- endurnýja þakkant að hluta, þakrennur og dren yfirfarið.
- Nýlegur dyrasími.
- Fjölbýlishús málað að utan sumarið 2021
- Stutt í verslun, grunn- og leikskóla.
- Eignin er í einkasölu

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.