Góð 112,7 m
2 efri hæð, sem hefur verið talsvert endurnýjuð, á góðum stað stutt í skóla og þjónustu.
Hæðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús/búr, þvottahús og geymslu á jarðhæð.
Forstofa/ stigauppganga: Flísar á gólfi fatahengi. Fallegur steyptur stigi sem er teppalagður, tveir gluggar.
Eldhús er með hvítri innréttingu með ljósri borðplötu, brúnar flísar á milli efri og neðri skápa á gólfi er harðparket. Nýleg hurð út á þak á geymslu.
Búr innaf eldhúsi með hillum, gluggi er þar.
Stofan er rúmgóð með harðperkti á gólfi úr stofu er nýleg hurð út á suðursvalir.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, ljósar flísar á veggjum og hvít innrétting, hiti í gólfi, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum nýlegum fataskáp á gólfi er harðparket.
Tvö barnaherbergi bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Hol er með harðparketi á gólfi.
Á jarðhæð sem er gengið niður í úr eldhúsi en þar er þvottahús með máluðu gólfi í sameign með íbúð á jarðhæð, hurð út í garð og sér geymsla.
Geymsluskúr á lóð, nýlegur ca 9m
2 að stærð.
Annað:- Nýlega skipt um svalahurðir á efri hæð.
- Nýlega skipt um stóran hluta af gluggum.
- Búið er að múrviðgera húsið að utan.
- Búið er að skipta um tengla og rofa að stærstum hluta.
- Nýlega búið að endurnýja rafmagnstöflu.
- Ljósleiðari.
- Baðherbergi endurnýjað 2009
- Sér bílastæði fyrir framan húsið.
- Lóðin er óskipt.