Skemmtilegt 4-5 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á góðum stað í Lundahverfinu. Samtals 170m
2 þar af bílskúr 23,2m
2.
*** Eignin getur verið laus við undirritun á kaupsamning ***Eignin skiptist í: Á neðri hæð forstofu, þvottahús/geymslu, bílskúr, gestasnyrtingu, eldhús, svefnherbergi og stofu.
Á efri hæð er sjónvarpshol (búið að stúka af herbergi þar auðvelt að breyta til baka) þrjú svefnherbergi þar af herbergið innaf sjónvarpsholi, hjónaherbergi er með fataherbergi innaf, geymslurými inná þakrými. Rúmgott baðherbergi.
Neðri hæð:Forstofa flísar á gólfi og fatahengi.
Stofa/borðstofa parket á gólfi, útgengi út á góða hellulagða verönd sem snýr til suðurs.
Eldhús: Lökkuð eldri innrétting, borðkrókur, flísar á gólfi.
Hol: Parket á gólfi, hátt til lofts, þakgluggi.
Herbergi: Parket á gólfi, góður fataskápur.
Gestasalerni: Flísar á gólfi upphengt salerni.
Þvottahús/ geymsla: Lakkað gólf, stæði fyrir þvottavél og þurrkara, Mjög góð innrétting með miklu skápaplássi. Hurð út á hellulagða verönd sem snýr til suðurs.
Bílskúr: Lakkað gólf, hillur, rafdrifinn bílskúrðshurðaopnari. Inngönguhurð er í bílskúr.
Efri hæð:Timburstigi er á milli hæða með timburhandriði.
Sjónvarpshol Sem er rúmgott, parket á gólfi. Inn af sjónvarpsholi er rými sem stúkað hefur verið að það er notað sem svefnherbergi í dag.
Hjónaherbergi parket á gólfi, inn af herbergi er fataherbergi, einnig geymslurými undir súð.
Herbergi með dúk á gólfi, góður fataskápur
Baðherbergi flísar á hluta af veggjum og gólfi, baðkar með sturtutækjum, eldri innrétting, opnanlegur gluggi.
Annað:- Laus við kaupsamning.
- Nýlegt parket á gólfi á neðri hæð.
- Nýlegar innihurðir á neðri hæð.
- Hitalögn er í stétt
- Stutt í leik og grunnskóla.
- Stutt í íþróttasvæði KA.
- Skemmtileg staðsetning.