Mjög falleg 4ra herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýli í Hagahverfi stærð 105,5 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi ( eitt nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi), baðherbergi, þvottahús/geymslu og sameiginlega geymslu.
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús spónlögð eikar innrétting og eyja með miklu skápa og skúffuplássi. dökkar borðplötur og flísar á milli efri og neðri skápa. Útgengt er úr eldhúsi út á steypta verönd til vesturs, hellulögð verönd þar fyrir framan með skjólveggjum.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfi. Stór gluggi er í stofu.
Svefnherbergin er þrjú, öll með harðparketi á gólfi og einnig eru fataskápar í öllum herbergjum. Hjónaherbergið er nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi er flísalagt bæði veggir og gólf, spónlögð eikar innrétting, upphengt wc, baðkar, sturta og handklæðaofn.
Þvottahús/geymsla er með físum á gólfi og spónlagðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og góðu skápaplássi, vaskur er þar.
Geymsla er sameiginleg fyrir framan, undir stigapalli.
Annað- Gólfhiti er í allri íbúðinni
- Steypt verönd og hellulögð verönd með skjolveggjum. Einnig er hellulögð verönd til suðurs.
- Ljósleiðari.
- Falleg og gróin lóð.
- Gott aðgengi.
- Tengi fyrir rafmagnsbíla.