Reynihlíð 9 íbúð 203 .
Mjög skemmtileg og björt 4ra- 5 herbergja íbúð í Hörgársveit- Stærð 115,9 m².
***. Eignin getur verið laus í september.***
Eignin skiptist:Forstofa, eldhús, stofa, Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla sem hægt er að nota sem herbergi. Lítil geymsla í sameign á hæð.
Forstofa er með stórum fataskápum og ljósum flísum á gólfi.
Eldhús/borðstofa er rúmgott rými í eldhúsi er dökk innrétting frá Tak innréttinum með ljósri borðplötu. Uppþvottavél er innbyggð og ísskápur fylgir. Ísskápur og uppþvottavél hafa bæði verið sérvalin með tilliti til góðrar orkunýtni í samræmi við kröfur vegna svansvottunar. Harðparket er á gólfi.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi og er þar aukin lofthæð sem gerir rýmið mjög skemmtilegt, stórir gluggar. Úr stofu er hurð út á stórar svalir sem snúa til suðurs. Harðparketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú og eru öll með skápum, harðparket er á gólfi.
Baðherbergi er vönduð innrétting frá Tak innréttinum. Í innréttingu er pláss fyrir þvottavél og þurrkara og fylgja þau tæki með við sölu eignarinnar. Flísar er á gólfi og hluta veggja.
Geymsla, 8,3 m², er innan íbúðar og getur hún hæglega nýst sem herbergi.
Annað:
- Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
- Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðar.
- Eignin er í einkasölu.