Halldóruhagi 10 - 101
Mjög falleg og skemmtileg þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi með sér inngangi. Eignin er skráð samtals 93,5 m
2. að stærð og útgengt út á rúmgóðan steyptan pall til suðurs.
Eignin skiptist í forstofu, geymslu, snyrtingu, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Geymsla er innaf forstofu með flísum á gólfi.
Snyrting er innaf forstofu með flísum á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Stofa og eldhús í opnu rými með harðparketi á gólfi. Útgengi úr stofu út á verönd til suðurs. Falleg dökk innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð. Eldunareyja þar sem hægt er að sitja við og skúffur eldúsmegin.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni, góð innrétting, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi er á baði. Falleg lýsing.
Geymsla eigninni tilheyrir hlutdeild í sameiginlegri geymslu.
Annað: - Gólfhiti
- Húsið hefur fengið byggingalistarverðlaun Akureyrarbæjar.
- Sér merkt stæði með rafmagnstengil - ( 3ja fasa 22 kW )
- Stutt í náttúruparadísina í Kjarnagskógi og Naustaborgum.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf.