Mjög skemmtileg og talsvert endurnýjuð 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum í raðhúsi á vinsælum stað í Lundahverfi - stærð 126,7 m².
Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, stofu, eldhús, hol, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Nánari lýsing:Neðri hæð:Forstofa er með flísum á gólfi fallegum gluggum við útidyrahurð.
Gestasalerni er innaf forstofu með flísaþyljum..
Stofan er með flísum á gólfi og þaðan er gengið út á timbur verönd og lóð til suðurs.
Eldshús með fallegri eikar innréttingu með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Þvottahúsið er með ljósri innréttingu og flísum á gólfi með plássi fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi.
Geymslan er innaf þvottahúsi með ljósum skápum og flísum á gólfi opnanlegur gluggi.
Efri hæð:Holið er með parketi á gólfi, búið er að setja hurð og gler þar sem auðvelt er að taka.
Svefnherbergi með parketi á gólfi, fataherbergi. Þaðan er einnig gengið út á steyptar suður svalir.
Svefnherbergi rúmgott með parketi á gólfi og góðum ljósum fataskáp.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggjum, ljósri innrétting, baðkar og sturta, upphengt salerni. Hiti í gólfi. Opnanlegur gluggi.
Annað:- Flísar á allri neðri hæðinni með hita í gólfi. Einnig hiti í gólfi á baðherbergi efri hæðar.
- Búið er að endurnýja rafmagnstöflu og tengla, dregið í nýtt að hluta.
- Skipt hefur verið um glugga að stórum hluta í eigninni, einnig svalahurðir og útidyrahurðir.
- Hitaþráður í þakrennum.
- Ljósleiðari
- Mjög góð staðsetning, stutt er KA svæðið, leik- og grunnskóla sem og ýmsa aðra þjónustu.