Einstaklega skemmtileg og vel skipulögð efri sérhæð í tvíbýli á vinsælum stað á brekkunni með stakstæðum bílskúr. Eignin er samtals 180,3 m
2. en þar af er bílskúrinn 37,3 m
2. Í kjallara er geymsla sem sem hægt er að nýta sem herbergi auk þess er þar sameiginlegt rými.
Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, búr, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi auk geymslu/svefnherbergi í kjallara og bílskúr.
Forstofa einstaklega falleg innkoma í húsið á forstofugólfi eru flísar.
Stigi upp í íbúð er steyptur, fallegir gluggar bæði í stiga og uppá stigapalli þar eru skápar.
Eldhús er með flísum á gólfi og gólfhita, hvít innrétting, flísar uppá veggi, tengi fyrir uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og innbyggðum ísskáp. Gott pláss fyrir eldhúsborð. Fallegir gluggar.
Stofa og borðstofa eru með parket á gólfi og bjart rými. Útgengt er á rúmgóðar svalir til suðvesturs úr borðstofu. á svölum er markísa sem getur fylgt. ( í dag nýtist hluti af stofu sem herbergi)
Þvottahús og kalt lítið búr er inn af eldhúsi. Gólfhiti og stæði fyrir þvottavél og þurrkara og tveir opnanlegir gluggar eru í þvottahúsi. Farið er um stiga þaðan nðiur í kjallara.
Baðherbergi þar eru flísar á gólfi og veggjum, sturta með tveimur sturtutækjum, upphengt salerni, Hvít innrétting, handklæðaofn. Stór gluggi er á baðherbergi
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parket á gólfi og eitt þeirra með góðum skápum.
Gangur sem er rúmgóður en þar er gengið í öll svefnherbergin og baðherbergi, þar er laus skápur sem getur fylgt.
Kjallari er með sameiginlegu rými auk þess sem þar er sér geymsla sem hægt er að nýta sem svefnherbergi/vinnuherbergi. Innangengt er úr þvottahúsi íbúðar og einnig er hægt að ganga inn í kjallarann um sameiginlega hurð norðan við hús.
Bílskúr er stakstæður og er norðan við húsið. Þar er bæði inngöngu- og innkeyrsluhurð sem er rafdrifin, lakkað gólf og rafmagn. Þar hefur þak verið endunýjað nýlega.
Annað: - Þak á bílskúr endurnýjað sumarið 2025. Nýr þakkantur hringinn, einangrunarplötur settar ofan á steypta plötu PVC dúkur soðinn yfir.
- Útidyrahurð endurnýjuð 2021
- Gólfefni að stærstum hluta endurnýjuð 2020
- Baðherbergi endurnýjað 2019
- Steypt bílaplan fyrir framan bílskúr sem tilheyrir eigninni.
- Sameiginleg lóð
- Sameiginlegt geymsluloft aðgengilegt af svölum
- Ljósleiðari tengdur
- Eignin er í einkasölu.