Hólabraut 19 neðri hæð.Mjög skemmtileg 4ra herbergja íbúð fallegu húsi við miðbæ Akureyrar - Stærð 104,6m² Stór steyptur pallur er við hús með timburskjólveggjum og tengi fyrir heitan pott.
Eignin skiptist í forstofu, geymslu, eldhús, stofu,borðstofu, tvö svefnherbergi, hol, baðherbergi og þvottahús/hurð út á pall.
Forstofa er með flísum á gólfi, hvítum fataskáp.
Geymsla innaf forstofu.
Eldhús með hvítri innréttingu, límtré á borðplötum, tveimur stórum gluggum, parket á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur í eldhúsi.
Stofa/borðstofa opið á milli stofu og borðstofu, rúmgott með fallegum gluggum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er með stórum hvítum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi
Hol með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með spónlagðri innréttingu með dökkum við, flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi. Opnanlegur gluggi er þar.
Þvottahús/hurð út á pall með flísum á gólfi.
Pallur mjög fallegur steyptur með timburskjólveggjum með hitalögn. Tengi fyrir heitan pott.
Annað:- Malbikað bílaplan við hús.
- Sér mælir fyrir hita og rafmagn.
- Engin sameign nema óskipt lóð.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir.