Hrísalundur 14

600 Akureyri
2
1
3
75 m²
46.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
  • Stærð 75 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1975
  • Brunabótamat 37.800.000
  • Fasteignamat 43.250.000

Hrísalundur 14 
Snyrtileg þriggja herbergja 75,6m2 íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi sem hefur verið vel við haldið að utan. Góð staðsetning, mjög nálægt leik- og grunnskóla, verslun og þjónustu ásamt íþróttasvæði KA. 

Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús. 

Anddyri er með  flísum á gólfi og opnu fatahengi. 
Gangur og hol er með plastparketi á gólfi. 
Svefnherbergin eru tvö, annað með plastparket á gólfi og hitt með dúk  og fataskápar í báðum herbergjum. 
Stofa er rúmgóð og björt með plastparketi á gólfi og þaðan er útgengt út á svalir sem snúa til suðurs. Af þeim er glæsilegt útsýni.
Eldhús er með plastparketi á gólfi, eldri dökkri innréttingu, ljósri borðplötu og  flísum milli efri og neðri skápa. 
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar er málað gólf og hillur.  Stór opnanlegur gluggi.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf of veggir.  Ljós innrétting og baðkar með sturtutækjum.
Sér geymsla í sameign fylgir eigninni. 

Annað: 
-Stétt að framan endurnýjuð og bílaplan malbikað
-Vatnsþéttiefni sett á svalagólf 2019
-Þak endurnýjað 2004
-Snyrtilegur stigagangur, sameiginleg vagna- og hjólageymsla  er á jarðhæð.
-Búið að endurnýja dyrasíma
-Ljósleiðari
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf.

Hrísalundur 14, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina