Merkigil 24

603 Akureyri
2
1
3
103 m²
76.200.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Raðhús/ Raðhús á einni hæð
  • Stærð 103 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2002
  • Brunabótamat 54.350.000
  • Fasteignamat 75.500.000
Opið hús: 26. mars 2026 kl. 16:30 til 17:00.

Opið hús: Merkigil 24, 603 Akureyri. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. mars 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Merkigil 24, 603 Akureyri 

Mjög skemmtilegt 103,1m2 endaraðhús á einni hæð á vinsælum stað í Giljahverfi.
****  Eignin getur verið laus við undirritun kaupsamnings ****

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi ( eitt er teiknað sem geymsla en nýtist sem svefnherbergi), stofu, eldhús og sólstofu ( upphitað rými, hátt til lofts) sem er út úr stofu. Úr sólstofu er gengið út á sólpall til vesturs. 
Tvö bílastæði framan við húsið fylgja eigninni.

Forstofa er flísalögð, Þar er hiti í gólfi,  skápur. 
Þvottahús er flísalagt. Þar er sprautulökkuð innrétting og opnanlegur gluggi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta, innrétting er sprautulökkuð í ljósum lit.
Hjónaherbergi er parketlagt og með góðum fataskáp.  
Stofa er parketlögð og úr henni er gengið út í rúmgóða sólstofu þar sem er hátt til lofts með flísum á gólfi, ofn er þar og hurð út á pall.
Eldhús er með flísum á gólfi. Innrétting er ljós  og flísar eru á milli efri og neðri skápa.  Uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni við sölu.  
Svefnherbergin eru þrjú en þarf af er eitt af þeim geymsla á teikningum en nýtist sem herbergi í dag, fataskápur í einu þeirra og parket á gólfum.
Geymsluloft er yfir stórum hluta af eigninni, uppganga er á gangi.
Sólpallur snýr til vesturs og er steyptur með viðar-skjólgirðingu. Afar skjólsæll og gróinn garður. 

Annað:
- Ljósleiðari komin í hús en ekki tengdur.
- Bílastæði fyrir framan hús.
- Geymsluskúr á lóð.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf

 

Merkigil 24, 603 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina