Klettaborg 66

600 Akureyri
3
2
4
150 m²
99.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
  • Stærð 150 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2002
  • Brunabótamat 75.350.000
  • Fasteignamat 97.000.000

Klettaborg 66

Einstaklega falleg og mjög mikið endurnýjuð fjögurra herbergja endaraðhúsaíbúð með innbyggðum bílskúr. Glæsilegt útsýni er úr eigninni sem er samtals 150,2 m2. þar af bílskúr 24 m2
***   Getur verið laus til afhendingar við kaupsamning ***
***   Eign sem vert er að skoða***


Eignin skiptist í:  neðri hæð, forstofu, snyrtingu, eldhús og stofu ásamt sambyggðum bílskúr. Á efri hæð er gangur, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og geymsla. 

Neðri hæð: 
Forstofa er með harðparket á gólfi gluggi við útdyrahurð.
Snyrting er inn af forstofu, þar er upphengt salerni, og opnanlegur gluggi.  
Eldhús er með harðparketi á gólfi, falleg innrétting með miklu skápaplássi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og ljósar flísar á bekkjarplötu og á vegg yfir skápum.  
Stofa er björt með ljósu harðparketi á gólfi. Milli stofu og eldhúss er hurð út á stóra steypta verönd með heitum potti. 
Stigi steyptur á milli hæða.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu harðparketi parketi á gólfi og tvö með fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til vesturs.
Baðherbergi er mjög fallegt, með flísum á gólfi og  dökkum plötum á veggjum.  dökk rúmgóð innrétting með hvítri bekkjarplötu og frístandandi vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Geymsla er með harðparketi á gólfi.

Bílskúr er skráður 24m2 og er innangengt í hann í gegnum forstofu og þar er rafdrifinn hurðaropnari. Innrétting í enda bílskúrs er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vask og fallegar ljósar flísar á gólfi. 

Annað
-Vel um gengin og mjög snyrtileg eign
-Stór steypt verönd með heitum potti sem snýr til vesturs.
-Næturlýsing í stiga milli hæða
-Falleg innfelld lýsing meðal annars yfir borðstofuborði og á baðherbergi
-Innfeld blöndunartæki.
-Hiti er í öllum gólfum
-Mjög fallegt útsýni 
-Góð staðsetning, miðsvæðis á Akureyri stutt í verslun og aðra þjónustu

Klettaborg 66, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina