Keilusíða 4

603 Akureyri
2
1
3
94 m²
49.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
  • Stærð 94 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1978
  • Brunabótamat 51.900.000
  • Fasteignamat 47.350.000

Mjög rúmgóð og björt  þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Eignin er skráð samtals 94,8 m2 þar af er geymsla í sameign 7,9m2.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, hol, borðstofu/stofu, eldhús, þvottahús og geymslu í sameign.

Forstofa með harðparketi á gólfi og fatahengi. 
Eldhús með borðkrók, flísar á gólfi. Innrétting í eldhúsi með ljósri borðplötu, Innbyggð uppþvottavél. Úr eldhúsi er hurð inn í þvottahús. 
Stofa/ borðstofa, hol og gangur með harðparketi á gólfi, úr stofu er útgengi út á svalir til vesturs. 
Svefnherbergin eru tvö bæði eru þau með harðparketi á gólfi og góður fataskápur í öðru þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, sturtuklefi og ljós innrétting við vask. 
Þvottahús með glugga, stæði fyrir þvottavél, hillur og málað gólf. 
Eigninni tilheyrir sér geymsla í sameign. 

- Eldhús endurnýjað árið 2020
- Harðparket á gólfum nýlegt.
- Sér geymsla í kjallara.
- Ljósleiðari.
- Stutt í grunn- og leikskóla. 

Keilusíða 4, 603 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina