Óseyri 18

603 Akureyri
0
0
1
735 m²
198.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
  • Stærð 735 fm
  • Herbergi 1
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1974
  • Brunabótamat 118.400.000
  • Fasteignamat 80.900.000


Óseyri 18 – Lýsing

Á 1. hæð í suðurhluta hússins er gott 54 m² iðnaðarbil með iðnaðarhurð og möguleika á að bæta við millilofti. Í vestari hluta 1.hæðar er rúmgott 124 m² verkstæðisbil með iðnaðarhurð og gönguhurð, sér salerni og kaffistofu. Í austurhluta 1. hæðar er 63 m² iðnaðarbil með iðnaðarhurð með innbyggðri gönguhurð. Í norðausturhluta 1. hæðar er góð 42 m² geymsla með tvöfaldri gönguhurð.

Á 2. hæð eru kaffistofa, snyrting, skrifstofa og geymslurými, auk vinnustofu með sérinngangi. Í miðrými 2. hæðar er jafnframt stórt milliloft með stórri hurð. Sá hluti er lítið einangraður og ekki upphitaður, en býður upp á mikla möguleika. Samanlögð stærð 2. hæðar er 248 m².

Á 3. hæð er óupphitað geymsluloft. Heildarstærð þess er 173 m², með möguleika á stækkun í allt að 248 m².

Lóðin er að hluta malbikuð og að hluta malarlögð. Heildarstærð lóðar er 1.658,6 m².

 

Óseyri 18, 603 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina